« Choisir un livre | Page d'accueil | Quoi de neuf côté livres ? »

09.05.2008

Presse Islandaise

1132826662.jpg28.04.2008 Litli fer í leiðangur Ferðalag Litla, sem er hugarfóstur frönsku listakonunnar Severine Thevenet, var viðfangsefni krakka í Frístundaheimilinu Krakkakoti í Hvassaleitisskóla þegar þau komu í Borgarbókasafnið á dögunum. Þau bættu í söguna á ýmsan veg í máli og myndum, enda er myndefnið galopið fyrir skemmtilega túlkun. Severine var heilan mánuð, ein í íslenskri náttúru, að ljósmynda Litla. Afraksturinn er landslagsmyndaröð sem hún kallar Soliquiétud eða Einfriðsemd. Myndirnar sýna Litla í stórbrotnu landslagi þar sem hann m.a. leitar blámans og íhugar hinstu rök tilverunnar. Severine er afburðarljósmyndari og brúðugerðarmaður. Litla bjó hún til í Lyon í Frakklandi þar sem hún býr og tók hann með í ferðina sem "kokk og leiðsögumann". Höfundur texta í bókinni um Litla er Catherine Leblanc og hefur Rósa Davíðsdóttir þýtt hann. Á myndunum má sjá Severine skoða myndir nemenda í Hvassaleitisskóla. Sýningin um Litla verður opin í Borgarbókasafni til 1. júní. Til baka... Menntasvið og Leikskólasvið Reykjavíkurborgar Fríkirkjuvegi 1 Sími: 411 7000 menntasvid@reykjavik.is Upplýsingar um sviðin Reykjavíkurborg - Símaver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is
500894329.jpg

Ecrire un commentaire